enn á lífi....
Við erum búin að hafa það mjög gott í júlí.
Þann 14.7 tókum við okkur saman nokkrar vinkonur og gæsuðum
vinkonu okkar hana Rakel*.Við stálum henni á laugardags morgni og
létum hana sprella í bænum og fórum svo á Akureyri þar sem við
létum hana sprella aðeins meira svo var dekur og borðað saman heima
hjá Stefaníu þar sem við allar gistum,fórum svo heim á sunnud,en þá
átti ég eftir að keyra í Borgarnes að ná í mömmu sem var að koma úr
hringferð með Stínu systir og fjölsk.
Bessi var á meðan með stelpurnar á ferðarlagi í húsbílnum og þau
fóru á Siglufjörð,Ólafsfjörð og Akureyri og skemmtu sér mjög
vel.
Helgina eftir fórum við á húsbílnum suður á land og fórum
Lundarreyjadalinn,yfir Uxahryggi og tröllaháls,þar mættum við
frönskum hjónum sem voru villt og voru að leita að
Þingvöllum,,,,,,,,Við gistum svo á Laugarvatni.
Á laugardeginum fórum við á Selfoss í sund og á eftir í rúnt um
Stokkseyri þar sem við fórum í göngutúr í fjöruna og er þetta sú
stæðsta og flottasta fjara sem ég hef komið í við sáum Herjólf
sigla framjá og Dagný tíndi fullan vasa af kuðungum og veðrið var
svo gott.(Helgin áður voru hjón gefin saman á þessum sama
stað..)
svo var Eyrarbakki og Þorlákshöfn skoðuð en ekki fannst okkur
mikið í þau spunnið,svo var haldið áleiðis í Hveragerði og ætla ég
að láta fylgja eina færslu úr loggbók blílsins(það er Bessi
ritari)
vo var spyrnt til Hveragerðis ,var ferðin svo djöfulmögnuð
að nærr var kviknað í brensunum þegar plássið kom öskrandi á móti
mosanum....Og ekki orð um það meir...Við gistum svo í Hveragerði og
fórum Hvalfjörðin heim.
Helgina þar á eftir fórum við í útilegu í Húsafelli þar sem
Beglind og Jón voru í útilegu með vinnufélugum Jóns,þar var vel
tekið á móti okkur,við boðin í mat og fórum á brennu og svo var
sungið og trallað,morgunin eftir fórum við svo í sund og svo dúllað
heim.
Svo um versló var Bessi farinn út á sjó og ég átti langt frí og
ég ákvað að bjóða stelpunum mínum í óvissuferð (talaði af mér við
Birtu;-) En ég var búin að ákveða að fara til stóru systur minnar
og hennar famelí í Ólafsvík,og sú ferð var æðisleg,það sem var
dekrað við okkur,,vá,, við komun á föstud um sjö og þá beið okkar
matur og uppbúin rúm svo á laugardeginum var leiðindar veður við
systur skruppum í rúnt með börnin og þegar heim var komið var Aron
búin að finna línuskauta á þau Birtu og Ármann sem þau notuðu alveg
óspart,svo á sunnudeginum fórum við í hólminn í sund í æðislegu
veðri,keyrðum svo heim og fengum okkur pizzu,eftir kvöldmat fórum
við inn í sveit og flugum flugdrekum og löbbuðum upp eftir Fróðánni
og tíndum fullt af berjum"upp í okkur".
Læt þetta duga í bili
Jóhanna.